Sjómannadagurinn

Sjómannadagurinn er í dag og samkvæmt venju tekur lúðrasveitin þátt í hátíðahöldum í Hafnarfirði í tilefni dagsins.

Klukkan 10:00 verður spilað fyrir utan Hrafnistu í Hafnarfirði.

Eftir hádegi verða svo hátíðahöld við Flensborgarhöfn og hefur lúðrasveitin leik klukkan 13:50.

Áhugasamir geta kynnt sér dagskrána nánar á vef Hafnarfjarðarbæjar.