Um sveitina

Lúðrasveit Hafnarfjarðar var stofnuð í janúar 1950.

Sagan nær þó lengra aftur, því á árunum 1890-1924 voru starfandi þrjár lúðrasveitir í Hafnarfirði.

Í dag skipa sveitina um 35 blásarar og slagverksmenn, á aldrinum frá sextán ára fram yfir sjötugt.

Starfsár sveitarinnar hefst í byrjun september og stendur yfirleitt fram í júní. Lúðrasveitin heldur að jafnaði tvenna tónleika á ári, auk þess að spila fyrir Hafnarfjarðarbæ og fleiri við hátíðleg tækifæri, til dæmis 17. júní, sjómannadaginn, 1. maí og þegar ljósin eru tendruð á jólatrénu á Thorsplani.

Tónleika- og æfingaferðir hafa einnig verið hluti af starfseminni í gegnum árin. Reglulega fer sveitin í æfingabúðir yfir eina helgi, þar sem smáatriði eru fínpússuð fyrir tónleika og hópurinn hristur saman.

Af tónleikaferðum er helst að nefna landsmót Sambands íslenskra lúðrasveita, en lúðrasveitin hefur hefur tekið þátt í starfsemi sambandsins frá upphafi. Vorið 2012 var farið í heimsókn til Vestmannaeyja. Sveitin hefur nokkrum sinnum ferðast til meginlands Evrópu:

  • Til Þýskalands og Austurríkis árin 1971, 1974, 1985 og 2000
  • Til Hollands og Belgíu árið 2014.
  • Til Münchenar 2017
  • Til Münchenar og Ítalíu 2019
  • Til Münchenar og Sviss 2023.

Lúðrasveitin æfir í Tónkvísl, íþróttahúsinu við gamla Lækjarskóla, á mánudagskvöldum klukkan 20:00. Stjórnandi Lúðrasveitar Hafnarfjarðar er Rúnar Óskarsson.

Stjórn lúðrasveitarinnar skipa: Brynjar Óskarsson, formaður; Finnbogi Óskarsson, gjaldkeri og Atli Týr Ægisson, ritari.