Færslur frá árinu 2010

Stjórnandi óskast

13. ágúst 2010

Lúðrasveit Hafnarfjarðar leitar að stjórnanda fyrir starfsárið 2010-2011. Áhugasamir sendi umsókn með upplýsingum um menntun og starfsferil til ludrasveit@ludrasveit.is fyrir 28. ágúst. Þar fást einnig nánari upplýsingar.

Topsy – Frá 60 ára afmælistónleikunum 6. febrúar 2010

18. júní 2010

Æfing fyrir 17. júní

10. júní 2010

Mánudaginn 14. júní kl. 20:30 verður æfing í Tónkvísl fyrir skrúðgönguna 17. júní næstkomandi.
Hlökkum til að sjá sem flesta.

Stjórnin.

1. maí

15. apríl 2010

Að venju spilar Lúðrasveit Hafnarfjarðar í kröfugöngunni þann 1. maí.

Dagskráin í ár er svona:

  • 13:00 Mæting í Tónkvísl í búning
  • 13:40 Byrjað að spila á Ráðhústorgi
  • 14:00 Kröfuganga hefst
  • 14:30 Göngu lýkur á Flatahrauni

Mikilvægt er að sem flestir spili með!

Trompeten Express – Frá 60 ára afmælistónleikunum 6. febrúar 2010

16. mars 2010

Wunderland bei Nacht – Frá 60 ára afmælistónleikunum 6. febrúar 2010

11. febrúar 2010

Einleikur á trompet: Jóhannes Þorleiksson