Laugardaginn 7. október næstkomandi heldur Lúðrasveit Hafnarfjarðar sitt árlega Oktoberfest á Ölhúsinu í Hafnarfirði, Reykjavíkurvegi 60.
Þar verða fluttir valdir slagarar úr hinni víðfrægu grænu möppu LH, en hún geymir það allra besta í þýskri bjórtónlist auk íslenskra gullmola í svipuðum stíl.
Hér er einstakt tækifæri til að heyra tónlistina sem spiluð er á Oktoberfest í München ár hvert.
Gleðin hefst klukkan 20:00. Aðgangur er ókeypis.