Laugardaginn 12. október heldur Lúðrasveit Hafnarfjarðar sitt árlega Októberfest á Fjörukránni í Hafnarfirði.
Þar verða fluttir valdir slagarar úr hinni víðfrægu grænu möppu sveitarinnar en hún geymir það allra besta í þýskri bjórtónlist auk íslenskra gullmola í svipuðum stíl. Hér er einstakt tækifæri til að heyra tónlistina sem spiluð er á Októberfest í München ár hvert.
Talið verður í fyrsta lagið klukkan 21:00.
Aðgangur er ókeypis