Vorið er handan við hornið

Vortónleikar Lúðrasveitar Hafnarfjarðar verða haldnir í Víðistaðakirkju, laugardaginn 14. mars kl. 14:00. Stjórnandi Lúðrasveitar Hafnarfjarðar er Rúnar Óskarsson.

Á efnisskránni verður aðallega nýleg tónlist fyrir lúðrasveitir, meðal annars verk eftir Philip Sparke, Thomas Doss, Franco Cesarini og Stijn Roels, en einnig verður léttari tónlist, til dæmis syrpa laga úr teiknimyndum Disney. Floris Van Daalen, baritonleikari í lúðrasveitinni, mun svo leika einleik í verkinu Symphonic Variants eftir James Curnow.

Almennt miðaverð er 2500 krónur, en aðgangur er ókeypis fyrir 16 ára og yngri. Miða má nálgast í forsölu hjá lúðrasveitarfélögum fram að tónleikadegi, en einnig verður miðasala við innganginn. Rétt er að benda á að ekki verður posi við innganginn.

Viðburður fyrir tónleikana á Facebook