26. ágúst 2010
Eftir vel heppnaða afmælistónleika Lúðrasveitar Hafnarfjarðar í febrúar sl. kom í ljós að mikill áhugi var fyrir að hefja reglulega starfsemi LH aftur. Því hefur nú verið ákveðið að hefja æfingar af fullum krafti nú í haust.
Nokkrir hafa þegar sótt um auglýsta stöðu stjórnanda og verður vonandi gengið frá ráðningu hans á næstu vikum. Fyrsta æfing vetrarins verður í Tónkvísl (íþróttahúsinu við gamla Lækjarskóla) mánudaginn 13. september kl. 20:00.
Allir gamlir og nýir félagar eru velkomnir
Meðal þess sem þarf að yfirfara eru hljóðfæra- og búningamál lúðrasveitarinnar og því eru þeir, sem enn eru með hljóðfæri frá sveitinni og hyggjast ekki spila með í haust, beðnir að skila þeim (annaðhvort á æfingunni 13. september eða í Tónkvísl á skólatíma). Eins eru allir sem eru með búning frá sveitinni beðnir að skila þeim inn, hvort sem þeir ætla að spila með eða ekki.
Frekari upplýsingar um starfið framundan munu birtast jafnóðum hér á síðunni.
Í flokknum Æfingar | Engar athugasemdir »
13. ágúst 2010
Lúðrasveit Hafnarfjarðar leitar að stjórnanda fyrir starfsárið 2010-2011. Áhugasamir sendi umsókn með upplýsingum um menntun og starfsferil til ludrasveit@ludrasveit.is fyrir 28. ágúst. Þar fást einnig nánari upplýsingar.
Í flokknum Æfingar | Lokað fyrir athugasemdir
18. júní 2010
Í flokknum Æfingar | Lokað fyrir athugasemdir
10. júní 2010
Mánudaginn 14. júní kl. 20:30 verður æfing í Tónkvísl fyrir skrúðgönguna 17. júní næstkomandi.
Hlökkum til að sjá sem flesta.
Stjórnin.
Í flokknum Æfingar | Lokað fyrir athugasemdir
15. apríl 2010
Að venju spilar Lúðrasveit Hafnarfjarðar í kröfugöngunni þann 1. maí.
Dagskráin í ár er svona:
- 13:00 Mæting í Tónkvísl í búning
- 13:40 Byrjað að spila á Ráðhústorgi
- 14:00 Kröfuganga hefst
- 14:30 Göngu lýkur á Flatahrauni
Mikilvægt er að sem flestir spili með!
Í flokknum Spilamennska | Lokað fyrir athugasemdir
16. mars 2010
Í flokknum 60 ára afmælistónleikar 2010 | Lokað fyrir athugasemdir