Vortónleikar Lúðrasveitar Hafnarfjarðar verða haldnir í Hafnarborg laugardaginn 1. apríl kl. 17:00.
Bróðurpartur verkanna á efnisskránni var saminn fyrir leiksvið eða hvíta tjaldið; þar er um að ræða kvikmyndatónlist eftir John Williams og Danny Elfman, tónlist Claude-Michels Schoenberg úr Vesalingunum, og kafla úr svítu fyrir sviðshljómsveit eftir Dmítríj Sjostakóvítsj. Að auki verða flutt lög eftir Astor Piazzolla, Chick Corea og fleiri.
Stjórnandi Lúðrasveitar Hafnarfjarðar er Rúnar Óskarsson.
Miðaverð er 1500 krónur, en aðgangur er ókeypis fyrir 16 ára og yngri. Miða má nálgast í forsölu hjá lúðrasveitarfélögum fram að tónleikadegi og við innganginn þegar þar að kemur.Lúðrasveit Hafnarfjarðar
Laugardaginn 18. mars næstkomandi ætla Lúðrasveit Hafnarfjarðar og Lúðrasveit Vestmannaeyja að spila létta og skemmtilega tónlist úr ýmsum áttum á Ölstofu Hafnarfjarðar (áður Enska barnum) að Flatahrauni 5a í Hafnarfirði.
Tónlist úr hinni víðfrægu Grænu möppu LH verður áberandi, en hún hefur að geyma það besta úr þýskri bjórtónlist auk íslenskra gullmola í svipuðum stíl.
Tónleikarnir hefjast klukkan 17:30 og er aðgangur ókeypis!
Aðventutónleikar Lúðrasveitar Hafnarfjarðar verða haldnir í Víðistaðakirkju laugardaginn 3. desember kl. 14:00.
Kvikmyndatónlist verður fyrirferðarmikil á efnisskránni, meðal annars tónlist eftir John Williams úr myndunum um Indiana Jones og Stjörnustríð, og einnig tónlist Jóhanns Jóhannssonar úr kvikmyndinni The theory of everything. Að auki verða flutt verk eftir James Curnow, Robert Buckley, John Philip Sousa og fleiri. Þá munu einhver jólalög slæðast með.
Á tónleikunum mun Stefán Ólafur Ólafsson klarinettuleikari stíga fram og blása stefið úr Lista Schindlers.
Stjórnandi Lúðrasveitar Hafnarfjarðar er Rúnar Óskarsson.
Miðaverð er 1500 krónur, en aðgangur er ókeypis fyrir 16 ára og yngri. Miða má nálgast í forsölu hjá lúðrasveitarfélögum fram að tónleikadegi og við innganginn þegar þar að kemur.